Austurstrandar Hip Hop

Austurstrandar hip hop er form af hip hop tónlist sem saman stendur af jamíkanískum dancehall og töktum frá R&B, diskó, funk ásamt sál og jazz.Austurstrandar hip hop er svæðisbundin stíll af hip hop tónlist sem varð í New York borg í Bandaríkjunum í kringum 1970[1]. Hip hop er almennt talið hafa orðið til fyrst og þróast svo á Austurströnd Bandaríkjanna. Stíllinn á Austurströndinni varð varanlega svæðisbundinn í Bandaríkjunum þegar aðrir tónlistarmenn frá öðrum fylkjum fóru að koma fram með öðruvísi stíla af hip hopi. Það varð varanlega vinsælt í kringum 1980, og hélt vinsældum í gegnum 1990 og heldur þeim enn. Er að finna að mestu leyti í New York-borg - Philadelphiu - New Jersey - Boston - Baltimore - Washington, D.C. og Virginia Beach.

  1. East Coast Rap Geymt 3 janúar 2011 í Wayback Machine AllMusic.com

© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search